Sunday, November 1, 2009

Afmæliskorti stolið.


Vildi bara koma þessu á framfæri ef einhver á það skilið að fá svona sendingu á afmælinu sínu þá er hægt að nálgast myndina hér, stela henni og njóta þess eins og ég.

Monday, October 19, 2009

Thursday, October 15, 2009

Halelúja

Einu sinni héldum við flest öll að Guðmundur í Byrginu væri góðmenni, sem hefði fært fórnir í þágu þeirra sem minnst mega sín. Hann kom fram í fjölmiðlum og auglýsti nauðsyn þess að sinna ”skjólstæðingum” sínum, akkurat eins og hann gerði það, svo fólk styrkti starfsemi Byrgisins með fjármunum og ríkið líka.
Hann blandaði Guði Almáttugum, Jesú Kristi og öllum þeirra englum vel og vandlega inn í umræðuna og fólk úti í bæ táraðist yfir þessu gegnheila fórnfúsa góðmenni sem Guðmundur VAR.
Nú situr hann á Hrauninu vegna kynferðisbrota og á yfir höfði sér enn lengri vist þar vegna milljóna fjárdráttar af söfnunarfé frá almenningi.
Við fáum sem sagt að greiða fyrir framfærslu ”góðmennisins” í nokkur ár enn.
Halelúja.

Monday, October 12, 2009

Kreppu húsnæði


Svona líta nú nýjustu íbúðarhverfin út hér á suðvestur horninu.
Virkilega sætt ekki, satt?
Það verður gaman i vetur þegar allt lauslegt fýkur yfir neðribyggðir borgarinnar.

Sunday, September 27, 2009

Hugmynd fyrir fótbolta-unnendur

Hér vantar ekki hugmyndaflugið.

Friday, September 25, 2009

Sunday, September 13, 2009

Saturday, September 12, 2009

Reynslusaga úr umferðinni/bílastæði.



Eftir að hafa rúntað milli troðfullra bílastæða við Hótel Sögu og Háskólabíó í leit að stæði fyrir litlu elskuna mína, sá ég loks eitt losna og var ekki lengi að skjótast í það og sá framá að ég kæmist tímanlega á ráðstefnu á Sögu.
Þegar ég steig svo út úr minni eðal drossíu fékk ég að heyra ÞAÐ…. Ung kona í stórum bíl sem hafði verið þarna nálægt, sagðist hafa verið búin að bíða lengi eftir að stæðið losnaði, hún gæti ekki lagt hvar sem væri og hún hafði aldrei vitað af annarri eins frekju og ég hafi sýnt þegar ég stal stæðinu hennar.
Hvað gerir svo gamla konan, þegar hún heyrir svona lagað um sjálfa sig?
Jú, hún brosir sínu alkunna góðlátlega brosi, hálf feimnislega, enda ekki vön svona tiltali úti á götu um miðjan dag og með dúndrandi samvikubit og hjartslátt segir hún ákveðin og yfirveguð;
“Maður verður að reyna að bjarga sér” og gengur ákveðnum sporum í átt að Sögu, með glymjandi hjartsláttinn í eyrunum en samt ánægð með sig.
Það var kominn tími til að standa með sjálfum sér og nýta það tækifæri sem gafst.

Wednesday, September 9, 2009

Hryllingssaga

An ugly bloke is on his way home from the pub one night when he passes a level train crossing.Suddenly, he spots a slim, big-boobed woman tied to the train tracks, so he rushes over to untie her.He then takes her back to his place, where he makes love to her all night, unable to believe his luck.The next day, he goes back to his local to tell the story."You're a lucky bastard," says the landlord. "So was she pretty, blonde, brunette? What exactly?""I don't know," he replies. "I didn't manage to find the head."

Monday, August 24, 2009

Myndablogg

Kötturinn Klói varð "ein augu" þegar hann fylgdist með undirbúningi kvennanna sem sjást á næstu mynd.


Neglurnar eiga konur sem eru á leið á djammið og stefna að því að vekja athygli karlkynsins.




Thursday, August 6, 2009

Útsýnið mitt

Þessi mynd er tekin að kvöldi 5 ágúst það herrans ár 2009.


Þetta er einungis hluti af útsýninu úr stofunni minni.


Tuesday, June 30, 2009

Sömu menn fyrir og eftir 2008

Fyrri myndin er fyrir neðan og sýnir þá félaga þegar þeir voru "upp á sitt besta" og hin er 2009 útgáfan þegar þeir voru "upp á sitt versta".


Wednesday, June 24, 2009

Bloggari


Ég verð aldrei vör við að nokkur maður lesi þetta blogg, þó ég hafi reynt að setja hér teljara þá hreyfist hann varla.
Ég er með 3 önnur blogg í gangi þar sem ég skrifa oftar, en í dag hef ég aðeins skrifað eina færslu og samt er búið að lesa hin bloggin mín 1.119 sinnum í dag.
Ef einhver slysast til að lesa þetta hér, þá bið ég bara að heilsa viðkomandi.

Saturday, June 20, 2009

Þróun tegundarinnar

Konan hefur þróast eins og hér sést og karlinn líka svo er spurning hvor þróunin telst hagkvæmari.

Það eru samt ekki allar þróunarkenningar eins en hafa samt nokkuð til síns máls ef grannt er skoðað.







Friday, June 19, 2009

Vonarstræti

Allt í einu sá ég þetta hús í dag og fannst ég aldrei hafa séð það áður. Samt hefur það staðið lengur við Vonarstræti en ég hef verið til og oft hef ég gengið þá götu og þá sennilega bara horft á suðurhliðina en þetta er vesturhliðin á húsinu.
Spurning; Af hverju eru húsin í Breiðholti ekki svona falleg?

Spákona á Gúgglinu


Var nú bara að athuga hvort það tækist hjá mér að setja þessa mynd hér inn og ætla að sjá útkomuna á blogginu.
Annars er ég að spá í að fara að spá, ég er svo djöf... klár að gúggla.

Wednesday, June 10, 2009

Bræður á Hereford


Bræðurnir Kristófer 8 ára og Gabríel 16 ára fóru á Hereford steikhús á Laugavegi með föður sínum og ömmu og nutu góðra veitinga. Nautasteikin var frábær og þjónustan notaleg. Mæli með þessum stað.

Saturday, May 23, 2009

Hún Er Komin

Fyrst hún er komin gæti þurft að nota ráðið sem ég gef hér aðeins neðar,,,, næst síðasta blogg...

Friday, May 1, 2009

1.maí

http://eyjan.is/webcam

Flensuráð


Góð hugmynd þegar og ef umtöluð flensa kemur til að vera.

Wednesday, April 29, 2009

Saturday, April 25, 2009

Kosningakvöld


Óska ánægðum kjósendum til hamingju með niðurstöður Alþingiskosninganna í dag.
Vona jafnframt að framtíð okkar allra verði góð og blessuð.

Saturday, April 18, 2009

Smá suddi

Sumir skrifa um veðrið, aðrir um hvenær þeir farið er á fætur, hringt í ættingja eða farið á klósettið, tala nú ekki um hvenær farið er í sund. Það er toppurinn á tilverunni þegar sumir geta sagt frá einhverju.
Svo eru aðrir eins og ég sem segi varla neitt. Set eina og eina mynd hér inn, sem ég hef getað hlegið að eða fundist fín á einhvern hátt.
Stundum hef ég velt fyrir mér að fara nú aða blogga um alvöruþrungin málefni, uppákomur í lífinu, hvernig sumir verða að aumingjum á meðan aðrir blómstra og segja mína skoðun á hvað ég tel valda þessu. EN hef ekki byrjað á því enn.
Ef ég fengi áskoranir, þá tæki ég mig til og reyndi að uppfylla óskir annarra. Ég er svoddan kóari in við beinið þó ég viðurkenni það aldrei. ALDREI.

Monday, April 13, 2009

Hann er búinn að vera

Hann er búinn að vera, búinn að gera .. svo stóran skandal að hann þurrkast næstum út.
Nú dugar ekki að segja bara "Fyrirgefðu" því fólk trúir ekki lengur á þetta fyrirbæri.
Allt sem fer upp kemur niður aftur, það sannast á fylginu.
En ætli það fari einhverntíma upp aftur?
Jó jó, áhrif?

Sunday, April 12, 2009

Gleðilega Páska


Vona að páskaeggin fara vel í maga.

Saturday, April 11, 2009

Laugardags dúll (ekki dekur)

Þar sem ég hef fengið nóg af því að pakka undanfarið, tók ég mér pásu og fór í gönguferð.
Þessum manni mætti ég á leiðinni, hef hitt hann nokkrum sinnum og hann býður ALDREI góðan daginn eins og flestir kurteisir menn gera nú.


Það er hægt að finna svona sæt svæði í henni Reykjavík ef vilji er fyrir hendi.

Byggingakranarnir í Kópavogi reyndu að troða sér á myndina en ég hundsaði þá.



Þarna er svo fyrirheitna landið .... að vísu óskýrt.
Flyt ekki fyrr en seinna.





Einn léttur fyrir páska


Fannst upplagt að setja hér einn BRANDARA áður en allur heilagleikinn skellur á okkur á morgun.
BRANDARINN móðgar engan fyrst þetta blogg er aldrei lesið.
HAHAHAHAHA
(Heimskur hlær að sjálf sín fyndni)

Thursday, April 9, 2009


Má bjóða einhverjum rós?

Tuesday, April 7, 2009

Blómahaf

Andrés í Lystigarðinum á Akureyri ca 1977

WOOO

Taktu gleði þína aftur, þetta er bara teiknimynd.

Monday, April 6, 2009

Lygamerki?

Þeir sem leggja stund á að skilgreina óyrt skylaboð geta oft séð lygamerki hjá fólki sem er að tala. Stundum tekur fólk fyrir munninn á meðan það lýgur ef það veit að það sem það er að segja á ekki við rök að styðjast. Sumir geta ekki horft í augu annarra þegar þeir segja ósatt.

Þeir sem hafa séð Gordon Brán tala hafa tekið eftir munnviprunum sem hann sýnir og þær hafa aukist til muna eftir að hann varð forsætisráðherra Breta. Nú er komin upp sú hugmynd að hann sé að ljúga þegar hann geiflar sig og þá sýnist mér að hann segi ansi sjaldan satt, aumingja maðurinn, því andlitið er allt á iði í hvert sinn sem ég sé honum bregða fyrir í sjónvarpinu.

-->

Sunday, April 5, 2009

Bara smá vangavelta...

Loksins fattaði ég hvernig á að finna aðra bloggara hér og hvernig ég á að rekast á sjálfa mig. Ég klikkaði á Reykjavík í prófælnum mínum og þá gerðist undrið. Ég sá fleiri en mig.
Svo var ég að reyna að setja inn teljara og það tókst að takmörkuðu leiti því hann sést bara í prófælnum og þar virðist bara verið talin innlitin þar inn en ekki á bloggið sjálft.
Kannski þetta sé rugl ..... ég veit ekki hvernig teljarinn virkar.

Tvær frægar.



Að ofan; Nefertiti eins og hún varð eftir lýtaaðgerðir.
Tvær frægar konur, önnur fyrir fegurð og hin fyrir ljótleika .

Gilitrutt og lata bóndakonan hittust á förnum vegi, spjölluðu saman og alles.







Monday, February 23, 2009

Sætar stelpur

Úrvalið er frábært eins og sést á þessari mynd. Allar skapgóðar, fallegar, sjálfstæðar og hvað er hægt að biðja um meira? Aftari röð; Steina, Marta, Steina, Gréta, Fremri röð; Ásta, Guðrún og
Guðbjörg

Tuesday, January 27, 2009

Ísland er land mitt


Svona er það á klakanum núna = grimmt.

Tuesday, January 6, 2009

Bloggið mitt

http://blogg.visir.is/skandala/

Thursday, January 1, 2009