Tuesday, June 30, 2009

Sömu menn fyrir og eftir 2008

Fyrri myndin er fyrir neðan og sýnir þá félaga þegar þeir voru "upp á sitt besta" og hin er 2009 útgáfan þegar þeir voru "upp á sitt versta".


Wednesday, June 24, 2009

Bloggari


Ég verð aldrei vör við að nokkur maður lesi þetta blogg, þó ég hafi reynt að setja hér teljara þá hreyfist hann varla.
Ég er með 3 önnur blogg í gangi þar sem ég skrifa oftar, en í dag hef ég aðeins skrifað eina færslu og samt er búið að lesa hin bloggin mín 1.119 sinnum í dag.
Ef einhver slysast til að lesa þetta hér, þá bið ég bara að heilsa viðkomandi.

Saturday, June 20, 2009

Þróun tegundarinnar

Konan hefur þróast eins og hér sést og karlinn líka svo er spurning hvor þróunin telst hagkvæmari.

Það eru samt ekki allar þróunarkenningar eins en hafa samt nokkuð til síns máls ef grannt er skoðað.







Friday, June 19, 2009

Vonarstræti

Allt í einu sá ég þetta hús í dag og fannst ég aldrei hafa séð það áður. Samt hefur það staðið lengur við Vonarstræti en ég hef verið til og oft hef ég gengið þá götu og þá sennilega bara horft á suðurhliðina en þetta er vesturhliðin á húsinu.
Spurning; Af hverju eru húsin í Breiðholti ekki svona falleg?

Spákona á Gúgglinu


Var nú bara að athuga hvort það tækist hjá mér að setja þessa mynd hér inn og ætla að sjá útkomuna á blogginu.
Annars er ég að spá í að fara að spá, ég er svo djöf... klár að gúggla.

Wednesday, June 10, 2009

Bræður á Hereford


Bræðurnir Kristófer 8 ára og Gabríel 16 ára fóru á Hereford steikhús á Laugavegi með föður sínum og ömmu og nutu góðra veitinga. Nautasteikin var frábær og þjónustan notaleg. Mæli með þessum stað.