Sunday, November 30, 2008

Íslendingar eru góðmenni, ekki spurning.


Íslendingar voru að keyra úti á landi og sjá þá bíl úti í kanti og sjá að þar sitja útlendingar í aðgerðaleysi.

Íslendingarnir fara út úr bílnum og segja:,,Do you need help?”

Útlendingarnir svara:,,no no this is ok”

Íslendingarnir gefa sig ekki og segja: ,,Yes yes, we are gonna help you”

Íslendingarnir hafa sem sagt áhyggjur af útlendingum og ákveða að draga þá áfram og sækja því reipi.

Þeir horfa upp á forviða á útlendingana og segja við þá:

”First we are gonna reip you and then we are gonna ýt you”

Saturday, November 29, 2008

Meðmælabréf

Jón fékk eftirfarandi meðmæli frá yfirmanninum sínum þegar hann sótti um starf hjá öðru fyrirtæki.

1. Jón Ólafsson, aðstoðarmaður minn eyðir góðum tíma
2. í erfiðisvinnu og frágang. Hann vinnur sjálfstætt og eyðir ekki tíma
3. í snakk og blaður. Hann veigrar sér
4. ekki við að aðstoða vinnufélagana og hamast
5. við að klára verkefninn tímalega. Oftast tekur hann
6. sérstakan tíma í verkefnin svona eins og til að forðast
7. miklar pásur. Jón hefur akkúrat enga
8. sérstaka ástríðu á sjálfum sér og mikla
9. kunnáttu á sínu sviði. Jón er gott að
10. aðlaga og nýtur reynslu sem engin má
11. vera án. Ég legg til að Jón verði af-
12. skaplega fljótt gerður að yfirmanni á góðum launum og yfir-
13. greiddur í eitt skipti fyrir öll
14. Það er uppástunga mín að hann verði gerður að forstjóra
15. við fyrsta tækifæri sem gefst.

Stuttu seinna fékk yfirmaðurinn sem hafði fengið þetta bréf e-mail: “Bölvað fíflið stóð yfir mér þegar ég skrifaði meðmælin sem ég sendi þér fyrr í dag. Vinsamlega lestu aðra hverja línu sem eru með oddatölunum”.

Thursday, November 27, 2008

Atvinnuauglýsing

Jónas setti upp verksmiðju í heimabæ sínum og fór að ráða starfsmenn. Hann auglýsti í staðarblaðinu og tók fram að hann ætlaði bara að ráða kvænta karlmenn.
Kvenréttindafrömuður bæjarins sá þessa auglýsingu og fannst rétt að tala við Jónas tveim hrútshornum.
Hún hringdi í hann og spurði hann “Af hverju ætarðu að ráða bara kvænta karlmenn? Er það vegna þess að þú telur konur aumari, heimskari,geðstirðari … eða hvað er málið?
“Nei, alls ekki, kona góð,” sagði Jónas. “Það er vegna þess að þeir kunna að hlýða skipunum, eru vanir að láta traðka á sér, vita hvenær þeir eiga að halda kjafti og fara ekki í fýlu þegar ég öskra á þá.”

Wednesday, November 26, 2008

Jólagjöfin í ár, ekki missa af henni.


Vegna gífurlegrar eftirspurnar er ekki tryggt að nógu mörg eintök verði í verslunum landsins þegar nær dregur jólum, einnig skal bent á að það er hagkvæmt nú í KREPPUNNI að kaupa eina gjöf sem allir fjölskyldumeðlimir sætta sig við og geta eytt frítímanum í næstu mánuði og ár, þegar atvinnuleysið tekur við.

Wednesday, November 19, 2008

Rósin mín


Kristófer tilbúinn í kvikmyndastjörnu hlutverk

Kristófer Andrésson fyrir og eftir að ráðist var á hann með skærum og honum breytt eftir fyrirmynd kvikmyndastjörnu.
Æi,,,, eitthvað gengur þetta ekki eins og það átti að gera. Efri myndin átti að koma fyrir neðan textann en hún tróð sér efst.



Sá sem gerði mig að ömmu

Hér er kvikmyndaleikstjórinn Gabríel Jóhann Andrésson að hugsa næsta leik. (Hvaða hlutverk get ég eiginlega látið ömmu leika, úff, hún er alltaf með þessa myndavél á lofti)

Félgasheimilið mitt

Þessi mynd af Haffa, Benna, Darra og Jóa er tekin af þeim við spilamennsku í félagsheimilinu Ofanleiti.

Monday, November 10, 2008

Kjaftshöggið kom ekki

Það var á Austurvelli sem maður snéri sér að öðrum og spurði hvort hann gæææ ti saa gt séer hvaaað kluuuukan væri.
Ekkert svar svo hann spurði aftur og enn fékk hann ekki svar.
Annar viðstaddur maður sagði manninum hvað klukkan væri og snéri sér svo að dónanum og spurði hvern andskotann hann hefði verið að hugsa .
"Ée eg va ar aaa að hu uugsa um aa aað fááá ee ekkia aáá kjafti iiinn."

Monday, November 3, 2008

Vinalaus Vælandi og Vansæl ;)

Held að ég sé alveg vinalaus.... allavega eru þeir ekki á þessari síðu.

Sunday, November 2, 2008

Rós


Þessi rós átti að opnast en gerir það ekki, hún er í fýlu.