Sunday, August 26, 2012

Stefán Atli

Hér er á ferðinni upprennandi hestamaður, hann þarf bara að eins að taka sig til í andlitinu áður en hann nær langt.

Wednesday, August 22, 2012

Hrossa hvað?

 Sumar hrossaflugur hafa skemmt sér í mjög miklum rólegheitum á gluggunum mínum. Sumar klessa sig saman og aðrar hafa bil á milli sín.... svona vissa fjarlægð og eru ekkert að troða sér uppá aðrar flugur. 
Hegðunin er kannski ekki ósvipuð og hjá okkur mannfólkinu. 
Nema hvað, flest fólk er ekki að hengja sig á útsýnisrúður í annarra manna húsum. 

Wednesday, August 8, 2012

Segið mér endilega

Ef einhver sem lítur á þetta bloggsvæði veit hvar hægt er að sjá önnur blogg hér þá bið ég þann eða þá aðila að skrifa ummæli við þetta blogg og segja mér það.
Eftir að útlitið á bloggsvæðinu breyttist, fyrir þó nokkru síðan, hef ég ekki getað skoðað nein önnur blogg hér nema þau sem ég hafði tengt við þessa síðu fyrir breytinguna.

Saturday, August 4, 2012

Náttúrulega náttúra

Náttúru listaverk á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp