Friday, November 25, 2011
Tuesday, November 22, 2011
Ljóskan ...
Ljóska nokkur ákveður að fara að dorga. Hún var búin að lesa sér svolítið til um efnið og eftir að hafa náð sér réttu græjurnar, leggur hún af stað niður að næsta frosna vatni.
Þegar hún er búin að koma sér fyrir á stól sem hún tók með sér og býr sig undir að saga gat á ísinn heyrist rödd að ofan: "ÞAÐ ER ENGINN FISKUR ÞARNA!"
Nokkuð brugðið færir ljóskan sig til og fer lengra út á ísinn, fær ...sér kakó og býr sig undir að saga nýtt gat. En aftur, af himnum ofan heyrist: "ÞAÐ ER ENGINN FISKUR ÞARNA!"
Nú stóð henni ekki á sama, en færði sig aftur, og var nú komin út á mitt vatn. Hún stillir upp stólnum og byrjar að saga. En röddin heyrist aftur: "ÞAÐ ER ENGINN FISKUR ÞARNA!"
Hún hættir, lítur til himna og segir, "Er þetta þú GUÐ?"
Röddin segir: "NEI, ÞETTA ER HÚSVÖRÐURINN Í SKAUTAHÖLLINNI !!!
Þegar hún er búin að koma sér fyrir á stól sem hún tók með sér og býr sig undir að saga gat á ísinn heyrist rödd að ofan: "ÞAÐ ER ENGINN FISKUR ÞARNA!"
Nokkuð brugðið færir ljóskan sig til og fer lengra út á ísinn, fær ...sér kakó og býr sig undir að saga nýtt gat. En aftur, af himnum ofan heyrist: "ÞAÐ ER ENGINN FISKUR ÞARNA!"
Nú stóð henni ekki á sama, en færði sig aftur, og var nú komin út á mitt vatn. Hún stillir upp stólnum og byrjar að saga. En röddin heyrist aftur: "ÞAÐ ER ENGINN FISKUR ÞARNA!"
Hún hættir, lítur til himna og segir, "Er þetta þú GUÐ?"
Röddin segir: "NEI, ÞETTA ER HÚSVÖRÐURINN Í SKAUTAHÖLLINNI !!!
Monday, November 21, 2011
Eftir mistök, framhjáhald og vesen í hjónabandinu var þetta búið og skilnaður óumflýjanlegur.........
Auk þess hafði Guðmundur fundið aðra í Lækjargötunni.........
Svo Guðrún átti að flytja út. Hún eyddi fyrsta deginum í að pakka öllu niður í kassa. Næsta dag kom fluttningabíllinn og sótti allt dótið. Þriðja daginn settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta skipti, kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af rækjum, rússneskum kavíar og drakk flösku af Chardonnay.
Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróð rækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum!
Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.
Þegar Guðmundur kom til baka í húsið með nýju kærustuna sína, voru fyrstu dagarnir ekkert nema gleði og hamingja.
En svo byrjaði húsið smám saman að lykta.
Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu, loftuðu út......... Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega, kannski voru þar dauðar mýs og rottur, teppin voru hreinsuð, og ilmpokum og loftfrískandi vörum var komið fyrir alls staðar.
Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "GASAÐ" gegn lyktinni, það þýddi, að þetta hamingjusama par þurfti að flytja út í nokkra daga.
Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega.
Ekkert hjálpaði. Vinirnir hættu að koma í heimsókn. Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að vinna í húsinu.
Húshjálpin sagði upp. Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau ákváðu að selja. Mánuði seinna hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hefði lækkað um helming.
Þetta spurðist út, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra.
Að lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán (ekki hjá Kaupþingi) til að kaupa nýtt hús.
Guðrún, fyrrverandi eiginkonan hringdi til Guðmundar og spurði hvernig gengi. Guðmundur sagði henni söguna um rotna húsið.
Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla heimilis síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið aftur. Guðmundur var viss um að ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo hann samdi við Guðrúnu að selja henni húsið á tíunda hluta af markaðsverði, gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs.
Hún samþykkti það. Viku seinna stóðu Guðmundur og kærastan í húsinu í síðasta sinn - þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar fluttningabíllinn kom og sótti allt þeirra dót til að keyra því yfir í nýja húsið.---- Þar á meðal gardínustöngunum !!!!!!
Friday, November 18, 2011
Þeir þurfa að kunna sitt fag......
Maðurinn var til vandræða í hjónabandinu , þar sem hann var gjarn á að eltast við ungar dömur og var enn einu sinni staðinn að verki.
Hann er mjög vandræðalegur og rjóður í kinnum og segir við konuna sína: “Þykir þér það voða leiðinlegt þegar ég eltist við ungar konur?”
“Nei,nei alls ekki.” sagði konan, “Jafnvel hundar eltast við bíla en kunna svo ekkert að keyra”
===================
Hvað er svo hægt að læra af þessum brandara?
Jú, konunni var svo nákvæmlega sama þó karlinn væri eitthvað að elta aðrar konur
því hún vissi sem var að hann kunni ekki til verka. Svo það var ekki eftir neinu að sjá.
Thursday, November 17, 2011
Wednesday, November 16, 2011
Saturday, November 12, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)